Verkefni
Sjúkratryggingar Íslands verða efldar sem kaupandi og kostnaðargreinandi heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins.
Ráðuneyti
HeilbrigðisráðuneytiðKafli
Heilbrigðismál
Framvinda
Ráðuneytið vinnur að frumvarpi um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem m.a. mun auðvelda Sjúkratryggingum að afla og vinna með nauðsynlegar upplýsingar til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Frumvarpið verður lagt fram á vorþingi. Þá var samþykkt að veita Sjúkratryggingum 150 m.kr. árið 2024 m.a. til að efla rekstur stofnunarinnar, m.a. greiningar og samningsgetu, þarfagreiningu vegna kaupa á heilbrigðisþjónustu og getu til að meta ávinning meðferða.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni