Verkefni
Jafnréttis- og kynfræðsla og ofbeldisforvarnir verða efldar í grunn- og framhaldsskólum.
Ráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneytiðKafli
Menntamál
Framvinda
EKKÓ (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi) leiðarvísir fyrir nemendur, starfsfólk og stjórnendur framhaldsskóla verður gefinn út fljótlega. Fræðslumyndband um EKKÓ mál fyrir framhaldsskólanemendur er langt komið og fer í notkun innan framhaldsskóla fljótlega. Haldinn var fræðslufundur um mikilvægi kynjafræðikennslu fyrir alla skólameistara framhaldsskóla. Þá er búið að gefa út nýtt námsefni um kynþroskaárin sem ætlað er börnum og ungmennum með auknar stuðningsþarfir sem þurfa aðlagað námsefni.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni